head04.jpg
Forsíða Efnadeild Véladeild Kælideild Fyrirtækið English
Saga fyrirtækisins
Starfsmenn
Fyrirtækið
Heildverslun Ásgeirs Sigurðssonar ehf. var stofnuð árið 1895 og hefur starfað sleitulaust síðan. Á annað hundrað ár telst langur tími í íslenskri verslunarsögu og það teljast því vart ýkjur þegar talað er um að fyrirtækið byggi á gömlum grunni. Iðnaðartæknifræðingarnir Almar Eiríksson og Páll Björnsson tóku við rekstri Ásgeirs Sigurðssonar ehf. í byrjun apríl 2002 af Nathan og Olsen hf. Þeir komu fyrirtækinu aftur fyrir í Síðumúla 35, bakmegin, þar sem það var til húsa þar til fyrir nokkrum árum áður. Árið 2006 flutti fyririrtækið starfsemi sína á núverandi stað, Stapahraun 10 í Hafnafirði.

Heildarþjónusta við matvælaframleiðendur
Ásgeir Sigurðsson ehf. var frá upphafi mjög fjölþætt innflutningsfyrirtæki, með matvæli og ýmsar nauðsynjavörur auk innflutnings á trefjaplasti og efnavöru til iðnaðar. Þá bauð fyrirtækið upp á víðtæka þjónustu við kæliiðnaðinn með kælimiðlum, pressum og þess háttar. „Við byggjum á síðarnefndu þáttunum, þ.e. innflutningi á trefjaplasti og efnavöru til iðnaðar auk þjónustu við kæliiðnaðinn. Við höfum svo aukið þjónustuna til muna svo það má segja að við höfum farið úr innflutningi á matvælum í heildarþjónustu við matvælaframleiðendur," Benda má á að í okkar viðskiptavinahópi rúmist allir matvælaframleiðendur, s.s. fiskiskip, frystihús, mjólkurbú, kjötvinnslufyrirtæki, sláturhús o.fl. „ Fyrirtækinu er skipt í þrjár þekkingarstöðvar, efnavörudeild, véladeild og kælideild, sem saman miða að því að þjóna matvælaframleiðendum hver með sínum hætti. Við bjóðum góða vöru og veitum matvælaframleiðendum ráðgjöf um hvaðeina er snýr að vélum, umbúðum, íblöndunarefnum, rekstrarvörum o.fl."

Ekki framandi heimur
Í langri sögu fyrirtækisins verða oft breytingar og breyttist starfsemi fyrirtækisins í lok október 2008 þegar úr varð að samkomulagi að leiðir Almars og Páls skildu og Páll stofnaði annað fyrirtæki Matvélar og pökkun utan um starfsemi tengda sölu á vélum og pökkunarefnum til matvælaframleiðenda.
Vörutegundir

Véladeild
Véladeildin sérhæfir sig í sölu á öllum vörum sem tengist vinnulofti s.s. loftpressum, loftverkfærum, loftsíum, loftkæliþurrkurum og varahlutum fyrir þessar vélar. Einnig eru seldir hlaupakettir, sandblastursvélar, smurfeiti, olíur og allar vélar sem notaðar eru fyrir verktaka og verkstæði.
Kælideild
Lagerfærsla á ýmsum vörum fyrir kæliiðnaðinn, svo sem vistvænum kælimiðlum og olíum ásamt Copeland og Tecumseh kæliþjöppum, frysti- og kæliklefum, síritum og einangrun.
Efnavörudeild
Sala og umsjón á Íslandsmarkaði fyrir m.a. ICI, Owens Corning, Airex, og marga framleiðendur efnavara og hráefna. Bein sala á efnavörum til sápu-, málningar-, plast- og fiskiðnaðar.
Einnig er fyrirtækið umboðsaðili Seitz sem framleiðir vörur fyrir efnalaugar og þvottahús og er leiðandi á sölu til þessa geira.
Hreinsiefni eru vaxandi flokkur en þar er lögð áhersla á að þjóna matvælaframleiðendum með sápur og pappír. Ráðgjöf við umhverfis- og þrifaeftirlit í matvælavinnslu.

Ásgeir Sigurðsson hf - Stapahraun 10 - 220 Hafnarfjörður - Sími: 595-4000, Fax: 595-4004 - Netfang: asgeirsig@asgeirsig.is